Hallbera
28.05.2008 09:26:08 / hallbera

35 vikur og 2 dagar

Fyrst að fólk er farið að halda að ég sé komin í verkfall... sem ég er nú aldeilis ekki;)... þá verð ég víst bara að gefa upp hvað er að gerast með mig.
Ég er sem sagt búin að opna barnanetsíðu sem er nú ekki orðin mikið merkileg ennþá en ég skrifa allavega stundum í vefdagbók!! Kíkið á það!
Ég reikna ekkert endilega með að skrifa meira á þessa síðu í bili en skal vera "dugleg" (á mínum mælikvarða) að uppfæra hina... sérstaklega þegar fjölskyldan er búin að stækka! Veriði bara duglega að kommenta þar í staðinn:):)
barnanet.is/olaviaogoliver

yfir og út

XXX


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.05.2008 10:59:27 / hallbera

31 vika og 6 dagar

Haldiði að mín sé ekki bara búin að vera í tölvunni í allann morgun og ekkert búin að leggja sig!! Fór bara hreinlega á fætur með betri helmingnum og borðaði með honum morgunmat:) Voða kósý að borða svona saman!! Ég ætlaði svo bara rétt að kíkja í tölvuna og núna eru 3 tímar síðan!! Fannst ég nú bara ekki geta hætt í tölvunni án þess að skrifa eitthvað smotterí hér!
Já eins og allir vita;) þá er myndatökudagur í dag og eru nýjar bumbumyndir því væntanlegar;) Ja eða miðað við fyrri framistöðu þá getið þið átt von á þeim einhverntíman í næstu viku en ég skal samt reyna að bæta mig!
Það er annars bara allt flott að frétta af okkur öllum. Það eru tveir mjög sprækir einstaklingar inní mér sem láta vel finna fyrir sér og það er nottlega bara æði:) Reyndar í gær meiddu þau mig í fyrsta skipti.. en það var nú ekkert alvarlegt svo ég fyrirgaf þeim strax:)
Við fórum í afmæli um helgina í bústaðinn til hennar mömmu sætu. Hún var 60 á laugardaginn og þá var nú ástæða til að fagna:):) Við vorum þarna allar systurnar og makar nema Tommi og barnabörnin tvö. Þetta var bara voða notalegt og gaman og við meira að segja spiluðum 2 spil!! Það er sko langt síðan það hefur gerst! Smári kom reyndar ekki fyrr en seinni partinn á laugardaginn þar sem hann var með nemendur sína í kanóferð sem heppnaðist víst alveg svakalega vel:)
Sunnudagurinn var svona týpískur þynnkudagur... vantaði bara þynnkuna;) hehe Það var rigning og rok og allt grátt. Við vorum bara í náttfötunum til 5 eða eitthvað og höfðum það rosa gott. Smári ætlaði að fara og sækja kayak sem einhver gaur ætlar að gefa honum en við bara hreinlega nenntum ekki út úr húsi!! Nauðsynlegt að eiga svona daga inn á milli!
Smári er að fara til Reykjavíkur á morgun og ég var svona að spá í að skella mér bara með honum. Hef svo sem ekkert sérstakt að gera hér en heldur ekki þar..... hmmm... jú ég verð að fara með nýjasta greys til Helgu annars getur hún örugglega ekkert sofið;) híhí Talandi um greys þá var síðasti þáttur alveg brill... ég alveg felldi tár yfir honum og allt. Get varla beðið eftir næsta föstudegi! Núna er ég orðin eins hooked og Helga var... bannað að smita mann!!
Erum að fara á fyrirlestur hjá Guðjóni Bergmann í kvöld. Kvennfélagið er með hann og við megum bjóða gestum með okkur. Smári er búinn að segja já svo ég var voða glöð með það!
Annars er eina planið í vikunni að fara í nudd á morgun svo er bara afslöppun það sem eftir er vikunnar. Þannig að ef þú ert í fríi og hefur ekkert að gera þá ertu sko velkomin hingað til mín:):)
Jæja, ælta að láta þetta duga í bili...
Spurning dagsins eða hugmynd dagsisn: Nöfn á börnin mín???
so long
XXX


» 14 hafa sagt sína skoðun

29.04.2008 20:51:16 / hallbera

31 vika

sko okkur var sko flýtt í 20 vikna sónar og svo seinkað aftur í 30 vikna sónar svo það lítur ekkert út fyrir að það sé langt síðan ég skrifaði síðast! hehe
Byrja á því að ég er búin að setja inn enn fleiri "sætar" óléttumyndir. Það eru einu myndirnar sem eru teknar á þessu heimili!! Ég held samt í alvörunni að ég þurfi að fara að ráða annann ljósmyndara... getur bara ekki verið að ég sé svona misheppnuð;) híhí Þórey þú tekur nokkrar fyrir mig þegar þið komið já og af okkur Smára líka:)
Lítið að frétta hérna þar sem ég er hætt að vinna og er bara heima í rólegheitunum. Ég er reyndar ekki búin að eyða mörgum dögum heima í slökun en nú verður breyting á.
Við erum búin að vera á töluverðu flakki Rvk -Lvatn en nú erum við búin með erindin okkar öll:), já eða þið skiljið, í bili.
Sumardagurinn fyrsti fór í að vígja íbúðina hennar Elsu. Þar var mikið game og fullt af fólki:) Valdís kom svo til okkar um helgina og við vorum í rólegheitunum heima nema smá á laugardaginn þar sem okkur var boðið í bústaðinn í mat.... ég skal ekkert tala meira um þá ferð... þeir skilja það sem eiga!! Smári var á Sólheimajökli á föstudaginn og Eyjafjallajökli á laugardaginn svo hann vann fyrir fjölskyldunni þessa helgina:)
Um næstu helgi á mamma afmæli... sko stórafmæli! Þá verður voða fjör held ég en ég veit allavega að hvað sem það verður þá verður það hér á suðurlandinu svo ég þarf ekki að ferðast mikið.
Kúlan stækkar og stækkar og sígur aðeins í leiðinni. Börnin eru sitthvoru megin við meðal einbura á stærð svo við erum voða glöð. Ljósan sagði allavega að þau hefðu það gott þarna inni og að við mættum vera voða glöð með niðurstöðurnar. Ég er farin að hlakka svo til að fá þau í hendurnar!!!! Fór meira að segja í eina búð í dag og keypti buxur á þau bæði!! Þori nottlega ekki að fara að þvo eða neitt því ég veit ekki hvort ég þarf að skipta litnum!!:):)
Jæja er hætt í bili... á sko nýjasta Greys á flakkaranum!!
Spurning dagsins: Hvenær fer báturinn?
XXX


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.04.2008 10:50:16 / hallbera

30 vikur og 3 daga!!

Já þetta er allt að gerast!! Ég fer líklega ekki uppí hærri tug í þessari meðgöngu!!

 

Sit í skólanum... enda er föstudagur... þá nenni ég aldrei að drífa mig heim því ég er búin að kenna svo snemmaJ Var sko búin kl. 8:55!! Lúxuslíf að vera kennari og ólétt!! Hehe


Verð nú samt að segja ykkur ótrúlega frétt héðan úr skólanum. Það eru 44 nemendur í öllum skólanum og í dag vantar 29 af þeim!! Pæliði í því!! Það liggur bara öll sveitin í ælupest! O hvað ég vorkenni þeim... eiga sko algjörlega alla mína samúð! Ég er búin að vera með 4 í bekknum mínum alla vikuna. Það er svo sem voða ljúft að vera með svona fáa annað slagið en maður fer ekkert mikið áfram í bókunum á meðan!! Við ákváðum að nota tækifærið og lesa “Með fiðring í tánum”. Við erum að tala um að við nánast lásum alla bókina í þessari viku og þeim fannst hún æði!! Mér fannst hún nú ekkert síðri... enda hef ég ekki lesið hana síðan í 7. eða 8. bekk!! Ég verð nú samt að viðurkenna að þegar hann fór á ballið og varð fullur þá leið mér ekkert of vel að vera að lesa fyrir 3. og 4. bekk:S Ekki alveg góð fyrirmynd!! En hann talaði svo mikið um hvað þetta var slæmt að þau geta nú varla hafa hlotið mikinn skaða af að heyra þetta. Svo fékk ég nú pínu kjánahroll þegar þau kysstust með tungunni og öllu var lýst í smáatriðum
JJhehe en það var nú bara gaman!! Lítur út fyrir að það sé ekki langt þangað til að “Tár, bros og takkaskór” verði tekin fram!


Ég er annars að fara að hætta að vinna. Fékk þá ráðleggingu hjá ljósmóðurinni sem við vorum síðast hjá og hætti því í næstu viku. Það verður voða notalegt þar sem ég finn nú alveg að það er ekkert auðvelt að gera allt!! Ætla að kenna þriðjudaginn og svo er ég farin að prjóna;) hehe

 

Það er svo sem lítið búið að gerast hér á Laugarvatni annað en að Smárinn minn er kominn á fertugsaldurinn! Hehe... ég er gift svo gömlum karli;) En finnst það nú bara betra!!

Á föstudaginn síðasta var allt í rúst heima. Flísaleggjarinn nýbúinn að leggja það sem hann ætlaði.. já eða næstum allt... og það var allt út um allt!! Mamma og pabbi og tengdó komu eins og himnasending um miðjan daginn og voru bara gjörsamlega á fullu, ásamt Smára og Eika smið, þangað til afmælið byrjaði á laugardaginn. Þvílík breyting!! Við Smári vökuðum á laugardaginn með bros á vör og það fyrsta sem ég heyri er “þetta er bara að verða eins og heimili”!! Yndislegt!! Alveg geggjað þegar maður sér svona mun!! Eiki setti sko hurðar í fyrir okkur svo núna getum við lokað að okkur þegar við förum á klóið já eða eitthvert annað í húsinu!! Það á reyndar eftir að setja upp 2 hurðar því við verðum að hafa eitthvað meira til að hlakka til !! Það er komið parket á allt nema stigann og allt gólf er tilbúið nema þvottahúsið (enda sér það enginn) en það er nú bara út af því að það eru ekki til flísar á það. Handriðið er komið upp en við erum að bíða eftir glerinu í það og ætti það að koma í næstu eða þarnæstu viku. Eins og þið heyrið= allt að gerast!! Ég er búin að setja einhverjar nokkrar myndir inn... en engar nýjar fyrir þig Þórey mín!!


Afmælið var svo haldið með pompi og pragt á laugardaginn. Það byrjaði á því að mömmurnar og pabbarnir og Lilja systir hans Smára og Sigga frænka komu í mat á norskum matartíma. Grillið var því rifið fram og verður ekki sett inní bílskúr aftur fyrr en þegar sumarið er búið!!


Um kvöldið komu síðan vinirnir og það var svaka gaman! Ég set kannski inn myndir hér fljótlega ef Día leyfir mér... hún var nebblega svo dugleg á myndavélinni en ekki ég!! Hehe Það var allavega dansað og skemmt sér til hálf fjögur og allir voða sáttir við það
!


Mamma og pabbi voru svo mætt daginn eftir til að þrífa! Haldiði að maður sé db!!!!! Væri fínt að vera bara alltaf ólett!!! Hehe

 

Í kvöld erum við að fara í partý með þorrablótsnefndinni til að taka út þorrablótið. Það var löngu planað að halda svona partý en ekki fundist tími fyrr en núna. Ég vona að það verði ekkert of lengi.... litla ég verð alltaf svo þreytt!! Hehe

 

Annars er lítið planað um helgina. Ætlum bara að vera í rólegheitunum. Smári ætlar reyndar eitthvað að reyna að komast í klifur á laugardaginn en ég veit ekki hvort hann getur það því hann er örugglega með slitið eða rifið liðband í ökklanum... fótbolti!

 

Jæja ætla að fara að hætta þessu... get ekki verið of lengi í skólanum heldur!!!

 

Spurning dagsins: Áttu eld?

 

Góða helgi allir saman... lifið heil!

XXX  


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.04.2008 11:17:26 / hallbera

28 vikur og 3 dagar

Kominn föstudagur og flísaleggjarinn búinn að leggja á allt gólf sem hann ætlar að leggja á!! Það er nú eins og honum finnist hann búinn að vera lengi hjá okkur því í morgun spurði hann mig hvenær ég ætti að eiga og sagði svo “ég hugsa ég vera búinn þá”. Voð dúlla!! En við höfum nógan tíma svo við höfum engar áhyggjur!!

Var að klára vinnuna núna. Styðsti  (dí alveg í vandræðum hvernig ég á að skrifa þetta orð!!) dagurinn í skólanum í dag, þarf bara rétt svo að vakna!! En fyrst að maður er mættur hérna er nú bara eins gott að nota tímann og gera eitthvað!!

Geggjað veður á Laugarvatni í dag svo það er spurning um að fara út á svalir með kjammanaJ já eða bara prjónana! Grindin eitthvað búin að vera að stíða mér svo ég labba nú ekki mikið langt... eða hvað.. á maður kannski að labba þegar manni er illt?? Ég kann ekkert á þessa verki! Ég býð líka bara Valdísi með mér í sund í dag. Hún er sko að koma um miðjan daginnJ Er nú reyndar líka að spá í að baka fyrir flísaleggjarann.. við erum svo miklir sauðir að bjóða uppá eitthvað!! Hann er búinn að vera í viku og ég held hreinlega að á þessari einu viku sé hann búinn að fá einn kaffibolla hjá okkur! Gestgjafar dauðans;) hehe Bæti honum þetta vonandi upp í dag með kökunniJ

Smári og Elsa að fara á Eyjafjallajökul á skíðum og brettum á morgun. Geggjuð spá svo það verður örugglega gaman... ég hef bara smá áhyggjur af sprungum og svona... er búin að biðja fyrir þeim svo þau hljóta að vera saveJ

Jæja ætla að fara að gera eitthvað aðeins meira vinnutengt svo ég geti farið sátt í helgarfríííííííí............:)JJ

Spurning dagsins: Hvaðan kemur “út á svalir með kjammana?”

 

XXX


» 6 hafa sagt sína skoðun

01.04.2008 21:02:44 / hallbera

28 vikur:)

Ég er alltaf í vandræðum með hvað ég á að láta færslurnar heita svo frá og með núna heita þær bara hvað ég er komin langt... enda mikilvægt fyrir ykkur að fylgjast með því;)

Já Smárinn minn er kominn og farinn aftur. Núna er hann á björgunarsveitarfundi... ég fer nú að verða vön að vera ein heima!!
/>

Aðalfréttirnar í þessari færslu eru þær að flísarinn er kominn og búinn að flota og byrjaður að flísaleggja!! Það er geggjað!! Ég er alltaf voða spennt þegar ég kem heim til að sjá hvað er búið að gerast:) Hann reiknar held ég með að klára þetta í næstu viku!! />

Jú og svo er líka önnur lítil frétt og það er að ég er komin í 50% vinnu. Fyrsti dagurinn í dag og það er nú voða ljúft. Ég mæti á hverjum degi en er bara stutt. />

Við fórum í mæðraskoðun í dag og fengum aftur hæstu einkunn. Ljósan heldur að þau séu búin að snúa sér en hún fattaði samt ekki hvar höfuðin væru. Förum í sónar eftir 2 vikur og þá kemur þetta í ljós. Hún heldur líka að ég sé með mikið legvatn... sem kemur sem sagt líka í ljós í þar næstu viku:) Alltaf svo gaman í þessum skoðunum. />

>

Stutt upprifjun hvað við gerðum um páskana ef það er einhver sem veit það ekki;) Byrjuðum á því að fara í bústað hérna í Grímsnesinu sem Hilmar og Kata voru með. Vorum þar nánast alla helgina og það var voða kósý. Á þriðjudaginn fórum við á Ólafsfjörð og hittum allt gengið þar og Þigneyrargengið sem var komið þar á undan okkur. Það var meiriháttar notalegt að vera þar... hefði sko alveg viljað vera lengur! En þar sem við vorum svo plönuð þessa páska þurftum við að fara á föstudagsmorguninn. Þá lá leið okkar með björgunarsveitinni upp að Skjaldbreið þar sem við gistum og höfðum það kósý fram á næsta dag. Páskadag var svo eytt í bústaðnum hjá mömmu og pabba og þangað komu Helga, Binni, Gunnar Valur, Elsa og Tommi. Góðir páskar sem sagt afstaðnir hjá okkur:):) />

Framtíðarplönin í næstu viku eru lítil. Við erum bara svona hægt og rólega að klára íbúðina og lítið krassandi á planinu. Við Valdís ætlum reyndar að fara á kærleiksdaga með tengdó á laugardaginn og svo verður svaka fjör á laugardagskvöld og sunnudag en ég lofaði Valdísi að segja ekki neitt;);) Spennó!! />

Jæja ætla að hætta í bili.... kósýkvöld með prjónana og Desperate housvifes hjá mér:) />

Spurning dagsins: Hvað á að gera um þar næstu helgi???>
 
>

XXX />

>




» 4 hafa sagt sína skoðun

12.03.2008 22:49:24 / hallbera

ein heima...

já maður er bara búinn að vera einn heima alla vikuna!! Ég er nottlega hrikaleg þegar ég er ein heima... gleymi að borða og fer seint að sofa!! Sef reyndar bara mikið á daginn í staðinn;) þá má sko þegar maður er óléttur:):) ein sátt;)
Smári er, eins og kannski flestir vita, í skíðaferð á Akureyri. Hann er alveg að fíla sig og búið að vera geggjað veður og færi alla vikuna... fer bara að verða hrædd um að hann komi ekkert aftur!!
Ég ætlaði að tilkynna það hér að það verður ekki bumbumynd í þessari viku sökum þess að ljósmyndarinn er ekki við.. myndatökum verður því frestað fram í næstu viku.
Lítur ekki út fyrir að við förum á Sálina. Fattaði líka allt í einu að við erum ekki með neina pössun þar sem allt mitt lið verður í Barcelona og allt Smára lið verður í sumarbústað í Grímsnesinu. Maður verður víst bara að fá að gráta það í friði... koma líklega tónleikar eftir þessa!!
Við Smári eigum ástarafmæli í dag:) 7 ár síðan ég var í skíðaferðinni góðu og hjólin fóru að snúast fyrir alvöru hjá okkur:) Alltaf svo gaman að rifja þennann dag upp!
Ég var að koma úr matarboði hjá Guðrúnu, Katrínu og Viktoríu. Það var alveg æði. Fórum í smá göngutúr fyrst og enduðum hjá Láru í upphitun fyrir páskafríið = bjór... allir nema ég:S hehe Síðan fórum við yfir til þeirra og fengum þetta dýrindis lasagne og brauð og salat. Ég borðaði alveg á mig gat!! Katrín bauð svo uppá ís á eftir og meira  að segja fylgdi bland í poka með!! Hefði sko ekki getað verið betra!
Ég var sko líka í boði á mánudaginn:) Það er hugsað svo vel um mann hérna á Laugarvatni:) Ég alveg sátt við það!! Þá var það hún Lára mín sem var líka án mannsins síns þessa vikuna. Hún gerði kjúklingasalat sem var líka alveg geggjað! Ég er mest hrædd um að þær vilji aldrei bjóða mér aftur í mat því ég borðaði svo mikið!! hehe
Það var svo líka saumaklúbbur á mánudaginn hjá henni Brynju. Hún var bara allann daginn að undirbúa og núna er sko aldeilis komin pressa á okkur hinar! Hún var með súkkulaðitertu og svona wraps... eða þannig. Geggjað gott og ég var sko líka dugleg að borða þar;) hehe
Planið framundan er svo svakalegt!! Smári og Valdís koma á föstudaginn og á laugardaginn erum við að fara með Hilmari og Kötu í einhvern helli og eitthvað og svo er matarboð hjá þeim um kvöldið. Sunnudagurinn og mánudagurinn eru svo ætlaðir í vinnudaga í húsinu okkar og á þriðjudaginn förum við á Ólafsfjörð. Komum aftur á föstudaginn og þá er fyrirhuguð ferð á Kerlingu. Púff... þetta er ekkert smá plan en ég hlakka ótrúlega mikið til!
Ég átti sem sagt að vera að fara til Barcelona á morgun en í staðin er ég bara ein heima og er að fara að kenna!! Gaman gaman... ég vona bara að það verði gaman hjá þeim!! Þau taka skemmtunina út fyrir mig:) Góða ferð allir sem eru að fara!
Jæja ætla að fara að henda mér í góða langa heita sturtu og svo bara upp í rúm að tala við prinsinn minn....
Spurning dagsins: Hvað á að gera í páskafríinu?
XXX



» 6 hafa sagt sína skoðun

09.03.2008 18:02:24 / hallbera

Sálartónleikar!!!

Ég gleymdi eiginlega aðalatriðinu í síðustu færslu.... sko þar sem ég var að fara til Barcelona ætlaði ég ekki á tónleikana en núna langar mig svo en það eru ekki til miðar:(:(
Ef svo heppilega vill til að einhver á 2 miða fyrir okkur Smára.. já eða veit um einhvern sem á... sko í stúku þá langar okkur mikið að kaupa þá:):)
XXX


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.03.2008 11:49:16 / hallbera

snjór og meiri snjór...

Þetta líst mér á!! Fólk bara komin með plan fram til 2010!! Ekki er ég svona skipulögð!!!

Ég er samt búin að hætta við Barcelonaferðina.... finnst það ekkert alltof gaman en held að skynsemin fái að ráða í þetta sinn... ekki oft sem hún fær að ráða;) hehe

Það er allavega aftur kominn föstudagur og helgin sem framundan er er tileinkuð honum pabba mínum. Hann á nebblega stórafmæli á mánudaginn svo ég vona að við getum gert eitthvað skemmtilegt með honum um helginaJ Honum langar nú mest bara að koma á Laugarvatn og leggja parket... en það er spurning hvort hann fái leyfi til þess... þurfum aðeins að skoða þetta!! Hehe típískur pabbi!!

Við búin að eiga fína viku. Mikið búið að gerast í húsinu.. já eða mér finnst það!! Það er komið parket á neðri hæðina alveg og búið að grunna alla gluggakarmana uppiJ Flísarinn átti að koma í næstu viku en við báðum hann um að koma ekkert fyrr en eftir páska og hann var sko alveg til í það! Gott að við fáum smá aukatíma í að græja það sem þarf að vera klárt áður en hann kemurJ

Svo er hér stórfrétt fyrir þá sem vita um hvað málið snýst.... BYKO skápurinn okkar er hreinlega líklega kominn til landsins og við getum bara hreinlega fengið hann í næstu viku!! Haldiði að það sé lúxus... þurftum ekki að bíða nema í 7 mánuði eftir honum... sem er nottlega ekki neitt!! Hehe

Ég er búin með bæði teppin sem ég prjónaðu á litlu krílin okkar og er hreinlega byrjuð á skírnarkjólJ Þetta er svo gaman!! Held ég klári hann bara um helgina;) hehe dream on;)

Lítið búið að gerast annað í vikunni. Allt bara í rólegheitunum. Búin að fá fullt af snjó og enn snjóarJ Smári var að koma með hugmynd um að fara Lyngdalsheiðina á morgun þegar við förum suður... veit ekki alveg hvort við græðum mikið á því:S

Jæja ég ætla að fara að pota mér heim eins og mamma segirJ Enda komin í helgarfrí og það er sko enginn smá lúxus;)JJ

 

Spurning dagsins: frá hverjum helduru að þú fáir páskaegg??

 

XXX


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.02.2008 11:47:50 / hallbera

Komin í helgarfrííííí...

Ég bara á ekki orð fyrir því hvað ég er allt í einu orðin dugleg að blogga!! Njótið vel því.... er á meðan er:)

Föstudagur á Laugarvatni og meira að segja snjókoma!! Æði:) Ég var að klára að kenna og er því nánast komin í helgarfrí!! Hvað ætli maður sé búinn að fá mörg helgarfrí yfir ævina og maður er einhvernveginn alltaf jafn glaður þegar þau koma!!:) Það þarf greinilega lítið til að gleðja mann!! Á reyndar eftir að klára að prjóna einn bansga sem ég verð að vera búin með á mánudaginn en það er nú pís of keik fyrir handavinnukennarann mikla;)... og þá er komið helgarfrí:):)

Smári er að fara í ferð... finnst það nú hálf fyndið... eða sko það sem mér finnst fyndið er það að hann er að kenna einhverjum í bænum og þau eru að koma hingað á Laugarvatn í ferð. Þeir eru sko tveir með þennann áfanga en Smári verður samt að vera með þeim allan tímann og sofa með þeim og allt!! Maður er kannski bara svona gamaldags... vill bara hafa hann hjá mér á nóttunni:) En ég verð því "ein" heima um helgina. Mamma og pabbi eru reyndar að fara í bústaðinn svo ætli maður kíki ekki eitthvað til þeirra já eða þau til mín. Svo er Dísa að fara að koma í heimsókn á sunnudaginn. Stefnir allt í rólega og góða helgi... svona eins og þær eiga að vera hjá óléttum konum;) hehe

Fór í aukatíma í nuddinu í gær:) Var svo heppin að rekast á nuddarann minn á leiðinni heim og var eitthvað pínu illt og eitthvað svo hún bara bauð mér að koma í aukatíma:) Ekki amalegt það!! Alveg að fíla þetta nudd!!

Fór svo á Mirandas kynningu á Selfossi í gærkvöldi. Það var voða fínt. Mér finnst ég reyndar alltaf vera á kynningum! Gaman að fá svona auka "saumaklúbba" af og til;)
Lítið nýtt hérna... bara að láta vita af mér!!

Lifið heil:)

Spurning dagsins: hvenær ferðu næst til útlanda?

XXX

» 8 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 20:26:00 / hallbera

okei þá...

trúi ekki að ég hafi bara verið að setja þessar myndir sjálfviljug inn! Ég er sko dead sexy á ÖLLUM myndunum!! Dí... greinilega ekki með nógu góðan ljósmyndara... ja eitthvað er það allavega!! En þið skoðið bara kúluna og börnin mín tvö:) Einbeitið ykkur bara að því;)

Vorum í skoðun í dag og ég var með svo miklar áhyggjur því mér fannst þau hafa hreyft sig svo lítið en það var sko allt í fínu. Fengum toppeinkunn hjá ljósunni og hún hafði sko ekki áhyggjur af okkur! Hraðari hjartsláttur hjá A svo það er örugglega stelpan;) B var aftur aðeins rólegri en VÁ hvað þetta er gaman!! Langar að fara aftur á morgun:)
Fékk að vita að eins og staðan er núna væri ekkert að því að fljúga en hún vildi samt senda mig til læknis til að vera alveg viss svo Þórey og Halla þið getið andað léttar;)

Smári farinn á Björgunarsveitarfund og við Depill ein heima í rólegheitunum. Ég er búin að þrá svona kvöld lengi svo það verður sko vel nýtt:)

Var með gestakennara í útiskólanum í dag... það var sko bara hann Smári minn:) Börnin voru allavega alsæl og hvað þá ég!! Við vorum með eldhústíma þar sem við gerðum bál og elduðum brauð, pulsur og kakó. Geggjað veður og geggjað gott!! Toppa þetta seint!

Jæja ætla allavega ekki að eyða kósýkvöldinu mínu hérna í tölvunni!!

Spurning dagsins er sama og í gær:)

XXX


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.02.2008 21:39:24 / hallbera

Ég veit að það er kominn mánudagur...

en Smári fór með kortalesarann og snúruna úr myndavélinni í vinnuna og gleymdi því þar!! Annars hafði ég alveg tíma í dag til að setja þær inn á netið!! Vonum  að það komi á morgun í staðinn:)

Smári og Bjarni eru niðri í þessum töluðu orðum og eru að leggja parket:) já ég segi það satt!! Ég er að fá parket á húsið mitt!! ég svíf á bleiku skýji;:) ég á reyndar að vera að mála gluggakarma en er í smá pásu. Var aðeins að taka til hérna í hreiðrinu okkar... ja taka til er kannski ekki rétta orðið... meira svona að ryðja pláss svo að þeir geti parketlagt!! hehe.. já og fékk leyfi til að setjast aðeins niður og hvíla mig því ég verð doldið þreytt í bakinu ef ég stend lengi á kvöldin:)

Annars er bara allt gott hérna. Smári var í burtu ógeð lengi um helgina og ég bara í rólegheitunum í Reykjavík. Það var að vísu voða gott. Ég var nottlega að passa sjúklinginn minn... hann er bara sætastur af öllum í heiminum!! finnst vera mikil pressa á mér!! hehe. Aðgerðin gekk allavega vel á honum og hann var allur að braggast. Brosti bara útí eitt og var alveg sáttur:)

Verð samt að segja ykkur að þó að Smári hafi verið burtu um helgina þá fékk ég samt í rúmið... fékk það bara í dag í staðinn og var sko alveg sátt:):) Það var geggjað, næstum of gott!

Ég fékk svo lánað "snúningslak" (held að það heiti það) hjá henni Höllu minni og það var bara frekar þægilegt að hafa það undir sér í nótt. Svoldið skrítið en það var samt alveg að virka! Takk Halla mín fyrir lánið!:)

Jæja... ég á víst að vera að mála svo ég verð að hætta í bili...

Spurning dagsins: Hvað var gert fyrir þig/ hvað gerðir þú fyrir konuna á konudaginn??

Yfir og út

XXX




» 1 hafa sagt sína skoðun

20.02.2008 16:24:01 / hallbera

Ok.. skal setja nokkrar myndir hér inn...

Fyrst að það eru komnar svona margar áskoranir þá verður maður víst að fara að standa sig!! Við erum reyndar ekkert voða dugleg að taka myndir núna.. veit ekki alveg af hverju... tökum samt alltaf nokkrar á mánudögum:) ég set þær inn við tækifæri.. lofa ekki að ég geri það núna. Að skrifa eina svona færslu er meiri en nóg tölvunotkun fyrir mig á dag:) />

Var að koma úr nuddi. O hvað það er notalegt! Gæti alveg hugsað mér að fara í hverri viku!! Maður verður nú víst að hugsa smá um budduna!! />

Við vorum í Noregi um síðustu helgi og það var sko ljúft. Ekkert mál að fljúga og allt bara gott. Fengum alveg geggjað veður þar og það var meira að segja snjór og allt!! Smári fór tvisvar á skíði en ég var bara heima í rólegheitunum. Fór í heimsókn á leikskólann sem ég var að vinna á og það var voða gaman að hitta alla aftur þar. Við fórum svo til Skien einn dag til að versla og ég held í alvörunni að ég hafi aldrei verið eins léleg!! Fórum í H&M að sjálfsögðu og ég bara hreinlega nennti ekki að vera þar. Dreif mig bara út og var komin með nóg af verslunum!! Ætli maður sé eitthvað að breytast:) hehe. Ég reikna líka með að það sé H&M í Barcelona svo ég varð að spara eitthvað þangað til þá:):):) />

Annars var bara lítið annað gert i norge. Voða gott að koma þangað. Leið pínu eins og ég væri komin heim. Það var allavega góð tilfinning. />

Valdís var að koma til okkar í dag. Hún er í bekknum mínum og ég fékk strax að finna fyrir því í dag!! Var ekki alveg að höndla að ég væri “bara kennari”. Við ræddum það svo bara þegar við komum heim og ég held að það sé allt komið á góðan stað núna. />

Smári er að fara austur á morgun, ég sem var að vona að það væri ekki fyrr en á hinn, en það er ísklifurfestival sem hann er búinn að bíða lengi spenntur eftir. Við erum búin að bjóða Kristínu stjúpu hans í mat annað kvöld, því hún er í Hveragerði, og hann verður ekki einu sinni heima! Það verður þá bara kósý stelpukvöld úr þessu:) />

Parketið er komið í hús og meira að segja korkurinn líka. Núna bíð ég spennt eftir tíma eiginmannsins og vina hans til að setja það upp fyrir mig:) Það verður líka svo ljúft að fá það á þar sem það er hægt að setja upp hurðar um leið og parketið er komið:) Já og svo ekki sé talað um hurð á fataskápinn okkar. Þetta verður bara ljúft líf:):) />

Ég var voða dugleg í gær og í dag... var að setja myndir í ramma og skrúfa upp kertastjaka! Svo er sagt að maður geti ekki neitt!!! Ég er meira að segja að spá í að gerast svo djörf að hengja upp þessar myndir sem ég var að setja í ramma:) />

Gunnar Valur var í aðgerð í morgun. Ég heyrði í foreldrunum og þá var hann kominn til þeirra og hjúkrunarfræðingurinn sagði að allt hafi gengið vel. Við treystum að sjálfsögðu á að það sé rétt:) Hann og þau öll eru svo miklar hetjur!! />

Restin af vikunni og helgin eru óráðin. Var að spá í að fara til Reykjavíkur og vera í afslöppun hjá ma&pa en veit ekki alveg. Voða gott að vera líka bara heima hjá sér. Fer allavega til Reykjavíkur á laugardaginn þar sem ég þarf að fara með Valdísi þá. />

Annars bara allt við sama heigarðshornið hér hjá okkur. Maginn stækkar og stækkar og norðmönnunum finnst hann vera lítill miðað við hvað ég er komin langt og íslendingum finnst hann vera orðinn svo stór... hverju á maður að trúa??? />

Ég gleymdi nú samt að minnast á það að við fórum í 20 vikna sónar áður en við fórum út og það var ekkert smá gaman. Þau voru bara á fullu allan tímann að sparka og kýla og snúa sér og ég veit ekki hvað og hvað. Ljósmóðirin sagði að þetta væru greinilega miklir íþróttaálfar:) Allt leit vel út í öllum mælingum og allt eins og það átti að vera. Fengum nokkrar myndir sem ég er alveg að fara með í næsta hús og biðja hana að skanna inn fyrir mig... þá skal ég líka setja þær hérna inn. />

Yfir og út />

Spurning dagsins: hvaða kyn eru tvíburarnir???>

XXX />


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.02.2008 13:28:37 / hallbera

Þorrablót framundan...

Kominn föstudagur og tími á að ég bloggiJ

Er í vinnunni og var að klára að græja foreldraviðtöl. Verð sko að taka þau áður en ég fer út og það er bara hreinlega á miðvikudaginn í næstu viku!! Hversu ljúft er það!!!Mikil helgi framundan hjá okkur... Þorrablótið ógurlega!:) Dí... ég skil ekki hvað ég var að láta hafa mig útí.. við erum að tala um það að Hallbera Gunnarsdóttir er að fara að leika í leikþætti fyrir framan 500 (je je) manns. Þá kannski verður maður loks frægurJ hehe.

Já það er allavega þannig á svona litlum stöðum eins og við eigum heima á þá hittast allir í íþróttahúsinu í dag og hjálpast að við að græja allt. Ætli maður fari ekki og sýni lit fyrst að ég var veik í fyrra á þessum degi.

Valdís skvísa var að koma til okkar. Hún var búin að bíða hálfan sólarhring eftir flugi... alltaf gaman að því! Smári fór svo í morgun og náði í hana og kjólinn sem ég ætla að vera í á blótinuJ

Ætluðum til Reykjavíkur í gær en viti menn... þegar við vorum komin að þrengslunum var bara allt lokað:S Við biðum og biðum og eftir klukkutíma voru ennþá jafnmargir bílar stopp á undan okkur svo að við fórum bara.Búið að vera mikið rok hér hjá okkur og er víst spáð allsvakalega í dag. Vonandi nær það bara ekki alveg til okkarJ

Sónar í næstu viku og ég get bara varla beðið! Verður spennandi að sjá hvort að allt sé í lagi og allir séu sprækir og frískirJ Ótrúlegt að svona sónar sé bara til yfir höfuð!!

Maginn bara stækkar og stækkar og ég hef það fínt. Finn stundum aðeins til í grindinni en reikna með að það sé nú bara smotterí. Ætla að vera í nuddi í 2 vikna fresti það sem eftir er af meðgöngunniJ Maður verður nú að vera svolítið góður við sig.. er það ekki???

Jæja ætla að fara að koma mér heim... er ekkert búin að hitta Valdísi.. já og svo er líka löngu kominn matartími hjá mér og trúið mér ég má sko ekki missa úr máltíð í þessu ástandi;) hehe 

Spurning dagsins: Ferðu á eitthvað þorrablót?? 

XXX


» 9 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 15:15:04 / hallbera

Skólanum bara aflýst og allt!

Já það var bara geggjað veður hér í morgun svo skólanum var bara aflýst og ég mátti bara fara aftur uppí rúmJ Ekki leiðinlegt!! Endaí fyrsta skipti sem þetta gerist síðan ég byrjaði að kenna hérna. Málið var nú aðallega rok og skafrenningur svo það var erfitt fyrir skólabílana að koma.

Ég er allavega búin að nota daginn vel... já eða þannig velJ Byrjaði á því að horfa á pressu og svo nottlega greys og prjónaði teppið á annað barnið mitt yfir því. Svo lagði ég mig í “smá stund” eftir þetta og fór svo og eldaði þennann dýrindis mat. Hingað er ég svo komin og er planið að kíkja á annan greys þátt og próna enn meiraJ Lúxus líf... allavega í einn dagJJ

Við hjónin erum búin að panta okkur far til Noregs 13.-18. febrúar og erum alveg að verða voða spennt yfir því!! Ég ætla að fara til Bö og vera hjá Elinu og co á meðan Smári fer í skíðaferð með vinum sínum. Ég vona nú að hann kíki aðeins á Bö líka!! Ég vona að ég hitti bara alla sem ég þekki... mmm þetta verður gaman!! Þórey, Halla, Helga og Elsa látið mig vita ef ég á að skoða eitthvað í H&M fyrir ykkur... lofa ekki en reikna með að kíkja þar innJ

Um helgina síðustu komu fullt af gestum til okkar!! Það er alltaf svo gamanJ Við byrjuðum á því að halda þorrablótsfund á föstudagskvöldið sem varði til 2 held ég!! Svo á laugardaginn komu Elsa og Tommi til okkar. Við Elsa fórum á gönguskíði einn lítinn hring hér í bænum á meðan Smári og Tommi gengu upp á Laugarvatnsfjall og skíðuðu niður. Geggjað veður svo þetta var voða gaman. Við buðum svo Helgu og Binna og Gunnari Val í kvöldmat og komu þau að sjálfsögðu í það. Þegar pizzan var að verða klár hringdu mamma og pabbi í okkur öll og buðu okkur til Barcelona 13. mars í tilefni tveggja 60 ára afmæla.. reikna ég með allavega;) Geggjað boð sem var bara ekki hægt að neita svo við erum aftur að fara út þáJ Nema reyndar prinsinn minn... hann er  að kenna á Akureyri þessa viku og kemst því ekki með okkur. Voða leiðinlegt en lítið við því að gera. Ég held að það verði nóg af fólki til að passa mig hvort sem er!

Já um helgina þegar gestirnir voru var meira að segja spilað fram eftir nóttu.. lengur en nokkur af okkur hefur gert í langan tíma!! O væri alveg til í svoleiðis um hverja helgi;) hehe

Núna styttist óðum í þorrablótið okkar og æfingar því hafnar á fullu. Ég er ekki að standa mig.. vildi að mig langaði aðeins meira að leika þarna!! Hlýtur nú samt að reddast!! Þeir sem hafa áhuga á að koma á blótið hringja bara í mig og ég panta borð fyrir ykkur!!

Gunnar Valur var í röraísetningu í dag. Frænka hafði miklar áhyggjur af þessu öllu saman en drengurinn er bara eins og engill eftir þetta að sögn móður hansJ Gott að heyra það!!

Elsa útivistarkona er að fara til Rússlands á skíði á morgun. Hún ætla að vera ógeð lengi.. kemur ekki heim fyrr en 17. febrúar. Mér finnst þetta geggjað flott hjá henni og öfunda hana bara pínu! J

Jæja ætla að fara að prjóna svo teppið klárist einhverntíman...

Spurning dagsins: ertu búin/n að fara út og renna þér í vetur??

XXX


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
RSS tengill