Hallbera
12.02.2007 09:42:48 / hallbera

Þorrablótið búið...

til hvers á maður núna að hlakka???

Já þorrablótið er búið hérna á vatninu og var það nú ekkert smá gaman! Alveg þess virði að vera búinn að eyða svona miklum tíma í að hlakka til þess;) Við mættum alveg 10 frá Laugdælum og höfðum það ekkert smá skemmtilegt!! Meira en 300 manns og voða fjör. Við og Darri og Birta og pabbi Birtu og konan hans erum svo í skemmtinefnd fyrir næsta blót svo við verðum að fara að setjast niður og semja!! Maður er orðinn það merkilegur í þessu samfélagi hérna að það var gert grín af okkur á blótinu:) Mér fannst það voða gaman! Allavega gott blót af baki og farin að hlakka til þess næsta;)

Komin í vinnuna aftur eftir 2 daga heima lasin í síðustu viku.. líður eins og ég hefi ekki verið hérna í heillangann tíma!! Voða gott að vera komin aftur og hitta krakkana mína;) Þau voru öll að vinna á Þorrablótinu og mér fannst þau svo dugleg og sæt:)

Annarskil hjá okkur kennurnunum á þriðjudag og foreldradagur á fimmtudag. Alltaf gaman að spjalla við þessa yndislegu foreldra:) Starfsdagur á föstudag og svo vetrarfrí mánudag, þriðjudag og miðvikudag. Við erum ekkert búin að plana að gera eitthvað skemmtilegt en við förum allavega eitthvað til Reykjavíkur. Ætli við reynum ekki að nota tímann og undirbúa brúðkaupið eitthvað en við sjáum til... boðskortin eru svona fremst á listanum.

Eftir tvær vikur erum við að fara norður, rétt hjá Húsavík, á ísklifur festival. Ég hlakka mikið til og vona að ég fái líka að klifra eitthvað! Maður er eitthvða svo mikið dottinn út úr þessu núna.. ekkert búin að vera of virk:S Bætum allavega úr því eftir 2 vikur!!

Darri og Birta heima í dag svo það er rólegt hérna í skólanum... sakna þeirra nú hálf...:S Birta orðin voða mikið lasin og gat ekkert verið lengi á Þorrablótinu:( greyið en vonandi batnar henni nú fljótt!! Sendi allavega baráttukveðjur heim til þeirra:)

Ætla að fara að háma í mig nestið góða svo í kveð í bili...

Spurning dagsins: Hvað ætlaru að vera á öskudaginn??

XXX


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 10:33:51 / hallbera

Þorrablót á vatninu:)

Já viti menn.. það er komið að þorrablótinu mikla hérna á vatninu!! Allir, þá meina ég allir, bíða spenntir eftir að laugarvagurinn renni upp því þá hefst einmitt gleðin mikla:) Við hjúin mætum að sjálfsöðgðu ásamt the dream team og gerum allt vitlaust!! Vá hvað ég hlakka til!!

Ég var annars lasin í gær... man ekki einu sinni eftir að hafa verið svona lasin áður... var bara með hita og beinverki og ekkert annað.. fannst ég nú ekki alveg lasin sko!! Er alltaf bara allt eða ekkert þegar ég er lasin svo þetta var ný reynsla fyrir mig! Voða skemmtlegt:S Smári var svo ekkert á því að senda mig í vinnuna í dag en ég ákvað nú samt að fara... vona bara að ég vinni þetta af mér;) hihi

Valdís er með "partý" í kvöld þar sem boðið verður uppá kökur og popp:) Svaka partý þar á ferð og verðru örugglega voða gaman! Allar stelpurnar í 1.-3. bekk:)  Ég þarf sem sagt að drífa mig heim eftir skóla og fara að baka!! Prófa gömlu Kidchen Aid vélina sem við fundum í einum kassanum í flutningunum svo þetta er voða spennandi:)

 Helga og Binni eru flutt í nýtt hús... voru sko að kaupa sér og það er geggjað flott!! Blásalir 7 í Kópavogi. Ég væri sko alveg til í að eiga það:) verð bara dugleg að mæta í kaffi í staðinn;) Binni er að fara að útskrifast um helgina svo það verður heljarinnar teiti þar... fúlt að missa af því út af blótinu:( en svona er þetta víst... maður getur ekki all!

Við erum búin að ákveða að gifta okkur 2. júní svo takið daginn frá! Þetta veður heljarinnar veisla og ég er farin að hlakka mikið til að sjá alla:) Við erum byrjuð að  undirbúa helling og held við getum bara legið með tærnar uppí loft síðustu 3 mánuðina;) hehe... kannski ekki alveg.. ja allavega ekki ef mamma verður nálægt okkur:) Henni finnst svo gaman að svona veislum... alveg draumurinn fyrir hana!! Líka fyrsta dóttirin sem giftir sig;)

Jæja ég verð að fara því Darri var að biðja mig að koma og aðstoða hann við að kenna stærðfræði;) ég er nebblega svo flink;) hihi

Spurning dagsins: Ferðu á þorrablót???

XXX


» 6 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill