Hallbera
20.04.2007 08:11:39 / hallbera

GLEÐILEGT SUMAR!

Langaði bara til að segja þetta við ykkur því það er svo gaman að það sé komið sumar!!

Geggjað veður hér á vatninu í gær og við fórum á gúmmíbát útá vatn... æðislegt!!!

 Hafið það gott og njótið sumarsins!!:)

XXX


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 11:29:31 / hallbera

Páskafríið búið...

það er nú samt bara gott.. alltaf gaman að koma aftur í vinnuna eftir gott frí!! Ég átti allavega alveg æðislegt frí. Gerði svo margt en slappaði samt svo vel af:)

Við byrjuðum á því að eyða helginni í Reykjavík í rólegheitunum og komum svo aftur hingað austur. Gengum upp Stóra gil hérna á Laugarvatni og skrifuðum stafina okkar í tréð góða;) Tékkuðum svo á hellinum og Smári klifraði auðvita upp.. en ekki hvað! Við fórum svo í Reykholt að skoða klifuraðstæður. Gaman að hafa svona mikinn tíma til að skoða sig um:)

Við litum við í Hveragerði og kíktum á liltu systkynin þar. Ekkert smá sæt:):) Þau voru svo að fá nöfn á laugardaginn Þorsteinn Dagur og Þórhildur Sara. Æðisleg nöfn og sætum krílum!! Voða gaman að sjá Hildigunni og Jónas líka aftur... ekkert búin að sjá þau síðan í brúðkaupinu hjá Guðna.. en samt búum við í næsta bæ!! Maður er svo duglegur að sýna sig og sjá aðra!!

Við fórum svo vestur á Þingeyri á fimmtudaginn til Þóreyjar, Ella, Ernis, Vals og kúlubúans og þar voru Lísa, Rúnar og kúlubúinn mætt á svæðið:):)Þetta var ekkert smá skemmtileg ferð. Alltaf jafn gaman að vera með þessu yndislega fólki sem maður sér svo alltof sjaldan!!  Við Smári og Rúnar hennar Lísu klifruðum uppá Sandafellskerlinguna sem er upp við Sandafell sem er altso fjallið sem passar Þingeyri:):) Við Smári klifruðum líka aðra leið í landinu sem mamma hans ólst upp í. Svo var nottlega borðað og kjaftað og spilað eins og verður bara að vera á svona páskum:) Við fórum á tónleika með uppáhaldshljómsveit bræðranna... Pollapönk:) Það var sko gaman... alltaf gaman á tónleikum!!

Við vorum allavega komin hingað heim á mánudagskvöldið. Valdís var hjá mömmu sinni en koma líka með okkur hingað. Skólinn var að byrja í dag og mér finnst það fínt!! Allur frítími fer annars í brúðkaupsundirbúning sem er voða gaman...

Jæja ætla að fara að gera eitthvað af viti...

Over and out

Spurning dagsins: Fékkstu páskaegg??

XXX


» 2 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill