Hallbera
12.03.2008 22:49:24 / hallbera

ein heima...

já maður er bara búinn að vera einn heima alla vikuna!! Ég er nottlega hrikaleg þegar ég er ein heima... gleymi að borða og fer seint að sofa!! Sef reyndar bara mikið á daginn í staðinn;) þá má sko þegar maður er óléttur:):) ein sátt;)
Smári er, eins og kannski flestir vita, í skíðaferð á Akureyri. Hann er alveg að fíla sig og búið að vera geggjað veður og færi alla vikuna... fer bara að verða hrædd um að hann komi ekkert aftur!!
Ég ætlaði að tilkynna það hér að það verður ekki bumbumynd í þessari viku sökum þess að ljósmyndarinn er ekki við.. myndatökum verður því frestað fram í næstu viku.
Lítur ekki út fyrir að við förum á Sálina. Fattaði líka allt í einu að við erum ekki með neina pössun þar sem allt mitt lið verður í Barcelona og allt Smára lið verður í sumarbústað í Grímsnesinu. Maður verður víst bara að fá að gráta það í friði... koma líklega tónleikar eftir þessa!!
Við Smári eigum ástarafmæli í dag:) 7 ár síðan ég var í skíðaferðinni góðu og hjólin fóru að snúast fyrir alvöru hjá okkur:) Alltaf svo gaman að rifja þennann dag upp!
Ég var að koma úr matarboði hjá Guðrúnu, Katrínu og Viktoríu. Það var alveg æði. Fórum í smá göngutúr fyrst og enduðum hjá Láru í upphitun fyrir páskafríið = bjór... allir nema ég:S hehe Síðan fórum við yfir til þeirra og fengum þetta dýrindis lasagne og brauð og salat. Ég borðaði alveg á mig gat!! Katrín bauð svo uppá ís á eftir og meira  að segja fylgdi bland í poka með!! Hefði sko ekki getað verið betra!
Ég var sko líka í boði á mánudaginn:) Það er hugsað svo vel um mann hérna á Laugarvatni:) Ég alveg sátt við það!! Þá var það hún Lára mín sem var líka án mannsins síns þessa vikuna. Hún gerði kjúklingasalat sem var líka alveg geggjað! Ég er mest hrædd um að þær vilji aldrei bjóða mér aftur í mat því ég borðaði svo mikið!! hehe
Það var svo líka saumaklúbbur á mánudaginn hjá henni Brynju. Hún var bara allann daginn að undirbúa og núna er sko aldeilis komin pressa á okkur hinar! Hún var með súkkulaðitertu og svona wraps... eða þannig. Geggjað gott og ég var sko líka dugleg að borða þar;) hehe
Planið framundan er svo svakalegt!! Smári og Valdís koma á föstudaginn og á laugardaginn erum við að fara með Hilmari og Kötu í einhvern helli og eitthvað og svo er matarboð hjá þeim um kvöldið. Sunnudagurinn og mánudagurinn eru svo ætlaðir í vinnudaga í húsinu okkar og á þriðjudaginn förum við á Ólafsfjörð. Komum aftur á föstudaginn og þá er fyrirhuguð ferð á Kerlingu. Púff... þetta er ekkert smá plan en ég hlakka ótrúlega mikið til!
Ég átti sem sagt að vera að fara til Barcelona á morgun en í staðin er ég bara ein heima og er að fara að kenna!! Gaman gaman... ég vona bara að það verði gaman hjá þeim!! Þau taka skemmtunina út fyrir mig:) Góða ferð allir sem eru að fara!
Jæja ætla að fara að henda mér í góða langa heita sturtu og svo bara upp í rúm að tala við prinsinn minn....
Spurning dagsins: Hvað á að gera í páskafríinu?
XXX



» 6 hafa sagt sína skoðun

09.03.2008 18:02:24 / hallbera

Sálartónleikar!!!

Ég gleymdi eiginlega aðalatriðinu í síðustu færslu.... sko þar sem ég var að fara til Barcelona ætlaði ég ekki á tónleikana en núna langar mig svo en það eru ekki til miðar:(:(
Ef svo heppilega vill til að einhver á 2 miða fyrir okkur Smára.. já eða veit um einhvern sem á... sko í stúku þá langar okkur mikið að kaupa þá:):)
XXX


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.03.2008 11:49:16 / hallbera

snjór og meiri snjór...

Þetta líst mér á!! Fólk bara komin með plan fram til 2010!! Ekki er ég svona skipulögð!!!

Ég er samt búin að hætta við Barcelonaferðina.... finnst það ekkert alltof gaman en held að skynsemin fái að ráða í þetta sinn... ekki oft sem hún fær að ráða;) hehe

Það er allavega aftur kominn föstudagur og helgin sem framundan er er tileinkuð honum pabba mínum. Hann á nebblega stórafmæli á mánudaginn svo ég vona að við getum gert eitthvað skemmtilegt með honum um helginaJ Honum langar nú mest bara að koma á Laugarvatn og leggja parket... en það er spurning hvort hann fái leyfi til þess... þurfum aðeins að skoða þetta!! Hehe típískur pabbi!!

Við búin að eiga fína viku. Mikið búið að gerast í húsinu.. já eða mér finnst það!! Það er komið parket á neðri hæðina alveg og búið að grunna alla gluggakarmana uppiJ Flísarinn átti að koma í næstu viku en við báðum hann um að koma ekkert fyrr en eftir páska og hann var sko alveg til í það! Gott að við fáum smá aukatíma í að græja það sem þarf að vera klárt áður en hann kemurJ

Svo er hér stórfrétt fyrir þá sem vita um hvað málið snýst.... BYKO skápurinn okkar er hreinlega líklega kominn til landsins og við getum bara hreinlega fengið hann í næstu viku!! Haldiði að það sé lúxus... þurftum ekki að bíða nema í 7 mánuði eftir honum... sem er nottlega ekki neitt!! Hehe

Ég er búin með bæði teppin sem ég prjónaðu á litlu krílin okkar og er hreinlega byrjuð á skírnarkjólJ Þetta er svo gaman!! Held ég klári hann bara um helgina;) hehe dream on;)

Lítið búið að gerast annað í vikunni. Allt bara í rólegheitunum. Búin að fá fullt af snjó og enn snjóarJ Smári var að koma með hugmynd um að fara Lyngdalsheiðina á morgun þegar við förum suður... veit ekki alveg hvort við græðum mikið á því:S

Jæja ég ætla að fara að pota mér heim eins og mamma segirJ Enda komin í helgarfrí og það er sko enginn smá lúxus;)JJ

 

Spurning dagsins: frá hverjum helduru að þú fáir páskaegg??

 

XXX


» 3 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill